top of page
Search

Bingó í bongóblíðu

  • Stjórnin
  • May 6
  • 1 min read

Það var bongóblíða þann 4. maí síðastliðinn þegar austfirskar konur þrömmuðu til fundar, síðasta fundar fyrir sumarhlé. Góð mæting var á fundinn eða vel yfir fimmtíu konur. Spenna lá í loftinu því að á dagskrá var meðal annars hið árlega og æsisspennandi spilabingó með alls konar skemmtilegum vinningum.

Jóna Svandís Þorvaldsdóttir söngkona og Valur Þór Hjálmarsson tónlistarmaður fluttu nokkur lög í byrjun fundar, við góðar undirtektir. Þá flutti Elín Óskarsdóttir tvær skemmtilegar minningar frá fyrri tíð, sem ýmsar viðstaddar gátu tengt vel við.

Björg Blöndal, fyrrum formaður félagsins, varð 80 ára í apríl og var henni færður afmælisglaðningur og hlýjar kveðjur frá félaginu í tilefni þeirra tímamóta. Sömuleiðis hlutu þær Fanney S. Jóhannsdóttir 70 ára og Jónhildur Friðriksdóttir 90 ára afmælisglaðning en þær voru fjarstaddar og fá glaðninginn sendan heim við fyrsta tækifæri.

Spilabingóið gekk hratt og vel fyrir sig og fóru margar sælar fundarkonur með vinninga í farteskinu heim af fundi. Stjórn félagsins þakkar gefendum vinninga hjartanlega fyrir stuðninginn. Án velviljaðra félagskvenna og velunnarra væri ekkert bingó en það er einn af helstu tekjuliðum félagsins.

Kaffiborðið svignaði af kræsingum eins og venjulega. Það verður ekki annað sagt um austfirskar konur en að þær kunni til verka þegar kemur að því að útbúa veisluföng. Kaffinefnd fundarins fær bestu þakkir fyrir trakteringarnar.

Nú er komið sumarhlé og verður næsti fundur félagsins mánudaginn 7. september. Hefst hér með formleg niðurtalning! Dagsferð félagsins er áætluð laugardaginn 19. september nk., austur fyrir fjall. Takið daginn frá!


Hafið það sem allra best í sumar og hittumst hressar í haust, okkar kæru konur!



 
 
 

Comments


Austfirskar

  • Facebook

©2023 by Austfirskar. Proudly created with Wix.com

bottom of page