top of page
Search

Fjölmennt á febrúarfundi

  • Stjórnin
  • Feb 9
  • 1 min read

Það var frábær stemming á fyrsta fundi félagsins 2. febrúar síðastliðinn. Rétt tæplega 60 konur mættu til fundarins og var gleðilegt að sjá þar mörg ný andlit á meðal fundarkvenna. Vonandi framtíðar félagskonur þar á ferðinni.


Sigurborg Hilmarsdóttir frá Eskifirði flutti afar skemmtilegt og fróðlegt erindi um Kvenréttindafélag Eskifjarðar sem starfrækt var um tíma hér á árum áður. Það var gaman að fræðast um markmið og hlutverk félagsins og helstu verkefni. Það var einnig fróðlegt að heyra upptalningu á allir þeirri þjónustu sem eitt sinn var að finna á Eskifirði en hefur hefur verið lögð af. Það er sannarlega eftirsjá af margri þeirri þjónustu og atvinnustarfsemi sem var við lýði á fjörðunum í denn og sköpuðu atvinnutækifæri, kraft og dýnamík í lífið í þéttbýliskjörnunum.


Fundarkonur tóku lagið í tilefni þorrans, sungu Þorraþræl og Hangikjötslæri með tilheyrandi hreyfingum, sem alltaf hressir og kætir.

Frábær mæting og frábær fundur og auðvitað voru veitingarnar algjört hnossgæti enda kaffinefndin vel mönnuð.

Það var mikið spjallað og spekúlerað á borðum enda eru fundirnir ekki síst haldnir til að vera vettvangur nýrra og gamalla kynna og styrkja vináttu og samstöðu á meðal austfirskra kvenna.


Næsti fundur er einnig aðalfundur félagsins og verður hann haldinn mánudaginn 2. mars kl. 19:00 í Grensáskirkju. Þá verður matur á boðstólum og því hefst hann klukkutíma fyrr en venja er. Nánari upplýsingar varðandi skráningu, kostnað og annað verða birtar á miðlum félagsins

innan skamms.

Takið daginn frá!


 
 
 

Comments


Austfirskar

  • Facebook

©2023 by Austfirskar. Proudly created with Wix.com

bottom of page