top of page
Search

Fyrsti fundur haustsins framundan!

Stjórnin
Sep 6
1 min read

Það er ilmur af hausti í lofti og víða girnilegar berjamyndir að sjá hjá duglegu berjatínslufólki á samfélagsmiðlum. Það segir okkur að nú sé kominn tími til að hefja starfsemi félagsins á ný, eftir gott og gefandi sumarfrí!

Við í stjórn félagsins vonum að þið séuð jafn spenntar og við að hefja fundina á ný, hittast og spjalla um ævintýri sumarsins.

Við hlökkum mikið til að hitta ykkur og vonum að þið komist sem flestar til fundar næstkomandi mánudagskvöld, 7. september kl. 20, í safnaðarsal Grensáskirkju. Hér er hlekkur á nánari upplýsingar um viðburðinn:

Sjáumst hressar og kátar! 



 
 
 

Comments


Austfirskar

  • Facebook

©2023 by Austfirskar. Proudly created with Wix.com

bottom of page