Góðir gestir á desemberfundi
- Stjórnin
- Dec 9, 2025
- 1 min read
Updated: Jan 23

Það var notalegt samverustund á aðventufundi félagsins 1. desember sl. í safnaðarsal Grensáskirkju. Fátt betra en góð samvera á aðventunni.
Á fundinum voru Hringskonur með fallegt handverk til sölu og söfnuðu þær dágóðri upphæð frá örlátum félagskonum á fundinum til Barnaspítalasjóðs Hringsins. Þær sem versluðu vörur af Hringskonum fengu auðvitað einnig helling fyrir sinn snúð enda virkilega fallegar og vandaðar vörur til sölu.
Frændurnir Ásgeir og Þorkell frá Djúpavogi fluttu nokkur frábær lög fyrir fundargesti, bæði jólalög og dægurlög og var vel tekið undir í salnum. Frábærir tónlistarmenn þar á ferðinni og kann félagið þeim bestu þakkir fyrir þeirra framlag til félagsstarfsins.
Oddný Vala, formaður félagsins, afhenti Elmu Eide Pétursdóttur örlítinn afmælisglaðning frá félaginu en hún fagnar 70 ára afmæli síðar í mánuðinum.
Sr. Þorvaldur Víðisson sóknarprestur í Grensáskirkju og Fossvogsprestakalli var gestur fundarins og flutti hann frábært erindi sem gaf hlýtt í hjartað og rifjaði upp fyrir öllum viðstöddum þann kærleik og þau fallegu gildi sem er allt um kring á aðventunni og um jólahátíðina. Þorvaldur á ættir sínar að rekja austur á land í gegnum báða foreldra og var móðir hans, Jóhanna Ásdís Þorvaldsdóttir frá Fáskrúðsfirði með honum á fundinum.
Kaffihlaðborðið var glæsilegt að vanda og var mikið spjalla yfir kaffi og kökum.
Nú er félagsstarfið komið í gott jólafrí og verður næsti fundur ekki fyrr en mánudaginn 2. febrúar 2026.
Myndir frá fundinum eru komnar inn á myndasíðu félagsins hér á heimaíðunni.
Stjórn félagsins óskar félagskonum og öðrum velunnurum félagsins góðrar aðventu og gleðilegra jóla.





Comments