top of page
Search

Styrkur til krabbameinsfélaganna á Austurlandi

  • Stjórnin
  • Mar 11
  • 1 min read

Á aðalfundi félagsins, 2. mars síðastliðinn, var eftirfarandi tillaga að megin styrkúthlutun félagsins samþykkt samhljóða:


Aðalfundur Félags austfirskra kvenna í Reykjavík, haldinn í Grensáskirkju 2. mars 2026, samþykkir að úthluta kr. 500.000, - af fjármunum félagsins í styrk sem hér segir:

Styrkur að upphæð kr. 500.000, - til samstarfsverkefna Krabbameinsfélags Austfjarða og Krabbameinsfélags Austurlands.


Tvö félög eru starfandi á Austurlandi er veita krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra fjölbreytta þjónustu. Það eru Krabbameinsfélag Austfjarða sem þjónar fjörðunum í Fjarðabyggð og Djúpavogi og Krabbameinsfélag Austurlands sem þjónar Fljótsdalshéraði, Fljótsdalshreppi, Seyðisfirði, Borgarfirði eystra, Vopnafirði og Bakkafirði.

Félögin starfa saman að ýmsum verkefnum, svo sem fræðsluviðburðum og hvíldarhelgum fyrir krabbameinsgreinda og leggja þá bæði til fé í verkefnin inn á sameiginlegan reikning félaganna sem rekinn er í kringum það samstarf.

Aðalfundur Félags austfirskra kvenna samþykkir að styrkurinn renni til þeirra samstarfsverkefna sem ofangreind félög vinna í sameiningu að og mun styrkurinn verða greiddur inn á þann bankareikning sem notaður er af báðum samtökum í þau verkefni.


Styrkurinn hefur verið greiddur til félaganna og hlaut styrkveitingin góðar undirtektir á áfangastað. Fékk stjórn félagsins eftirfarandi kveðju frá félögunum:


„Krabbameinsfélögin eru mjög þakklát fyrir styrkinn. Það er ómetanlegt fyrir félögin að eiga bakland víðsvegar í samfélaginu og ekki síst frá hópum kvenna með tenginu austur til okkar, þar sem félögin voru stofnuð af konum til þess að koma á fót skimunum fyrir leghálskrabbameinum á svæðinu. Gjöfin kemur til með að nýtast vel til þeirra sameiginlegu verkefna sem félögin standa fyrir. ”


 
 
 

Comments


Austfirskar

  • Facebook

©2023 by Austfirskar. Proudly created with Wix.com

bottom of page