Söngur og gleði

Það var vel mætt á fyrsta fund haustsins, mánudaginn 7. september sl., í safnaðarsal Grensáskirkju.
Anna Sigríður Helgadóttir söngkona, sem alltaf er kölluð Anna Sigga, kom á fundinn og söng falleg lög fyrir hópinn. Anna Sigga er stórskemmtileg kona og var mikið hlegið af sögum hennar á milli söngatriða. Hún hafði með sér fulla tösku af fallegum skóm og skipti um skó fyrir hvert lag. Vakti það fyrirkomulag mikla kátínu í hópnum. Það verður enginn svikinn af því að fá Önnu Siggu í heimsókn og kunnum við henni bestu þakkir fyrir frábært og vel útfært framlag til fundarins.
Tvær konur sem fögnuðu merkisafmæli á milli funda fengu afmælisglaðning frá félaginu. Það voru þær Anna Björg Pálsdóttir sem varð 70 ára í júní sl. og Gígja Guðjónsdóttir sem varð 80 ára í júlí. Gígja var ekki á fundinum en fær glaðninginn sendan heim. Hamingjuóskir fylgdu einnig glaðningnum og þakkir fyrir þeirra framlag til félagsstarfsins.
Á fundinum var farið yfir helstu dagskrárliði haustferðar félagsins sem verður laugardaginn 19. september nk. Farið verður austur fyrir fjall og ýmislegt skemmtilegt gert á Selfossi og nágrenni.
Einnig var rætt um mikilvægi þess að félagskonur taki virkan þátt í starfinu, til dæmis með því að leggja til hugmyndir að dagskrárliðum og móti þannig starfið með stjórn félagsins. Var kallað eftir hugmyndum úr sal og komu margar skemmtilegar ábendingar út úr því samtali, sem stjórnin mun finna farveg fyrir á næstu fundum.
Það er óhætt að segja að haustönnin fari af stað af krafti. Á fundinum var að sjá mörg ný andlit og er gaman að finna aukinn áhuga fyrir félaginu og starfi. Í dag eru félagskonur tæplega 80 talsins og töluverður hópur kvenna mætir einnig tilfallandi á fundi og greiðir aðgangseyri, án þess að ganga í félagið.






Comments