Uppskeruhátíð austfirskra kvenna
- Stjórnin
- Mar 3
- 2 min read

Aðalfundur Félags austfirskra kvenna fór fram mánudagskvöldið 2. mars síðastliðinn, í safnaðarsal Grensáskirkju.
Hátt í 60 konur mættu til fundarins, flestar með fallega hálsklúta en þema fundarins var einmitt „Hölluklútar”, til heiðurs Höllu Tómasdóttur forseta Íslands.
Við setningu fundarins var lesin upp hlýleg og skemmtileg kveðja frá forseta Íslands sem sendi félaginu allar góðar óskir og þakkir fyrir störf í þágu samfélagsins.
Hlynur Hallgrímsson tónlistarmaður, flutti tvö lög í upphafi fundar við góðar undirtektir en amma hans, Helga Bjarnadóttir frá Fáskrúðsfirði, var lengi virk félagskona í félaginu. Voru lögin sem hann flutti í hennar anda.
Oddný Vala Kjartansdóttir var endurkjörin sem formaður félagsins til eins árs.
Þær Herdís Pétursdóttir og Margrét Unnarsdóttir gengu úr stjórn eftir langt og farsælt stjórnarstarf og var þeim afhentur örlítill þakkarvottur fyrir þeirra frábæra framlag til félagsstarfsins. Í stað þeirra voru kjörnar nýjar í stjórn þær Benný Sif Ísleifsdóttir og Sigríður Rósa Kristinsdóttir, báðar frá Eskifirði. Bjarney A. Pálsdóttir, Halla Kjartansdóttir, Jónína Dagmar Ásgeirsdóttir og Kristín Ásbjarnardóttir voru endurkjörnar til eins árs. Stjórn mun sjálf skipta með sér embættum.
Á fundinum var farið yfir skýrslu stjórnar og ársreikningur félagsins 2025 var samþykktur samhljóða. Samþykkt var að halda árgjaldinu óbreyttu á þessu starfstímabili, þ.e. kr. 4.000,-. Engin hækkun er heldur í farvatninu varðandi aðgangseyri kaffifunda sem er kr. 2.500,-.
Tekin var ákvörðun um stærstu styrkveitingu félagsins á árinu og verður sagt nánar frá henni í annarri færslu á miðlum félagsins.
Fundarstjóri og fundarritari var í höndum Höllu Kjartansdóttur.
Boðið var upp á glæsilegt hlaðborð frá Grillvagninum, líkt og fyrri ár og þar var ekki komið að tómum kofanum!
Frábær stemming var á fundinum og var mikið skrafað og spjallað yfir borðhaldinu og að loknum hefðbundnum fundarstörfum.
Fleiri myndir frá kvöldinu er að finna á myndasíðu félagsins hér á síðunni.








Comments