top of page

Hvað viltu vita um félagið?
- Spurningar og svör -

Það er mikilvægt að starfsemi félagsins og tilgangur þess sé öllum ljós og því höfum við tekið saman spurningar og svör sem við getum ímyndað að helst brenni á þeim sem ekki þekkja til.

Spurt er:  Er félagið öllum opið?

Svar:  Félagið er fyrir allar konur sem eiga ættir eða tengsl til Austurlands, eru búsettar í Reykjavík eða nágrenni, hafa áhuga á að viðhalda tengslum við aðrar konur að austan og vilja láta gott af sér leiða.

Spurt er:  Er dýrt að vera meðlimur í félaginu?

Svar:  Árgjaldið er kr. 3.000 og greiðist á aðalfundi eða fyrir sumarhlé.

Spurt er:  Hvað er gert á félagsfundum?

Svar:  Á félagsfundum er boðið upp á kaffihlaðborð. Oft er boðið upp á fræðsluerindi eða skemmtiatriði, haldnar eru kynningar af ýmsum toga og staðið fyrir bingói og happdrætti, svo eitthvað sé nefnt.

Spurt er:  Kostar inn á félagsfundina?

Svar:  Það kostar kr. 2.000,- inn pr. einstakling á hvern fund sem veitir aðgang að gómsætu kaffihlaðborði.

Spurt er:  Hvar eru félagsfundirnir haldnir?

Svar: Í safnaðarheimili Grensáskirkju.

Spurt er:  Hversu oft er fundað á ári?

Svar:  Fundir eru haldnir fyrsta mánudag í febrúar, mars, apríl, maí, september, október, nóvember og desember og hefjast fundirnir kl. 20:00.

Marsfundurinn er jafnframt aðalfundur félagsins​.

Spurt er:  Verður maður að vera í félaginu til að geta komið á félagsfundi?

Svar:  Nei, það er ekki skilyrði. Hægt er að koma sem gestur á fund og kynna sér starfsemina.

Spurt er:  Þurfa félagskonur að vinna mikla sjálfboðavinnu í félaginu?

Svar:  Nei, hver og ein hefur val um það hvort hún gefur kost á sér í stjórn eða nefndarstörf.  Öll félög virka þó best ef sem flestar félagskonur eru virkar í starfinu.

Spurt er:  Hver sér um kaffihlaðborðin á fundum?

Svar:  Þær félagskonur sem treysta sér til starfans, skiptast á að starfa í kaffinefnd. Alltaf eru a.m.k. fjórir í kaffinefnd hverju sinni og fá aðstoð frá stjórn við undirbúning og framkvæmd.  Kaffinefndin hverju sinni gefur veitingarnar en þarf á móti ekki að greiða kaffifundagjaldið í það skiptið.

Spurt er:  Greiða allar félagskonur árgjald?

Svar:  Nei, allar konur sem eru orðnar 90 ára og eldri þurfa ekki að greiða árgjald til félagsins (nema þær endilega vilji :-)).

Spurt er:  Hvað gefur félagið mikið til góðgerða á hverju ári?

Svar:  Það er misjafnt og fer eftir tekjum félagsins hverju sinni.

Spurt er:  Hver ákveður hvaða góðgerðafélög verða fyrir valinu?

Svar:  Stjórn leggur tillögu um slíkt fyrir á félagsfundum og/eða aðalfundi sem samþykkir tillöguna eða synjar.

lundar.jpg

Austfirskar

  • Facebook

©2023 by Austfirskar. Proudly created with Wix.com

bottom of page