Aðalfundarboð
- Stjórnin
- Feb 21
- 2 min read

Aðalfundur Félags austfirskra kvenna í Reykjavík verður haldinn í safnaðarsal Grensáskirkju mánudaginn 2. mars kl. 19:00.
Athugið að fundurinn hefst klukkustund fyrr en hefðbundnir fundir félagsins!
Á aðalfundum er ávallt matur á boðstólum og líkt og í fyrra verður gómsætt grillhlaðborð að hætti Grillvagnsins. Tvær tegundir af kjöti, meðlæti, gos og svo kaffi og sætt á eftir.
Aðgangseyrir er kr. 7.000,- og er allt innifalið í þeirri upphæð (matur, kaffi/gos, skemmtun, fundur).
Skráning á fundinn er skilyrði fyrir mætingu og er skráningarfrestur til fimmtudagsins 26. febrúar nk. Skráðir þátttakendur þurfa að tilkynna forföll eins fljótt og auðið er svo ekki stofnist til kostnaður vegna matarpöntunar!
Hægt er að skrá sig með því að:
a) senda upplýsingar um skráningu í Messenger skilaboðum í gegnum Facebook síðu félagsins.
b) hringja annað hvort í Oddnýju Völu í 861 1695 eða Herdísi 892 3731.
Þema fundarins er „Hölluklútur”, þ.e. við hvetjum þátttakendur til að mæta með klút í anda Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Engin skylda en alltaf gaman að hafa smá stemmingu fyrir þá sem eru upplagðir í það. Ef einhver er í vafa um hvað við erum að meina með „Hölluklúti” þá er hér skemmtileg frétt því tengdu, sem ætti að gefa tóninn:
Dagskrá:
Kl. 19:00 Formaður setur fund
Tónlistaratriði
Hlynur Hallgrímsson tónlistarmaður flytur nokkur ljúf lög.
Kl. 19:30 Grillhlaðborð frá Grillvagninum
Kl. 20:00 Kaffi og sætt - Aðalfundarstörf hefjast
Fundarstjóri og fundarritari kjörnir
Skýrsla stjórnar
Vefslóð á ársskýrsluna: Ársskýrsla stjórnar
Reikningar félagsins kynntir og bornir upp til samþykktar:
Vefslóð á ársreikning 2025: Ársreikningur 2025
Tillögur stjórnar lagðar fram til afgreiðslu á fundinum (tillögurnar opnast ef smellt er á þær hér fyrir neðan):
Kosning stjórnar
Kosið er um formann sérstaklega og 6 meðstjórnendur til eins árs.
Kosning 2ja skoðunarmanna reikninga
Önnur mál
Kl. 21:00 Áætluð aðalfundarslit. Að loknum formlegum fundarstörfum gefst
tími til spjalls og samveru.
Oddný Vala Kjartansdóttir gefur áfram kost á sér í formannsembættið og fjórar af þeim stjórnarkonum sem eru í núverandi stjórn gefa einnig kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.
Tvær stjórnarkonur, þær Margrét Unnarsdóttir og Herdís Pétursdóttir, hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.
Allar félagskonur geta boðið sig fram til stjórnar en óskað er eftir því að upplýsingar um ný framboð berist til formanns félagsins sem allra fyrst.
Ásgerður Ásgeirsdóttir og Halldóra Karlsdóttir gefa áfram kost á sér sem skoðunarkonur félagsins en þær hafa gegnt því hlutverki síðustu árin.
Við hvetjum félagskonur og aðrar áhugasamar til að mæta á aðalfundinn. Allar velkomnar! Þess ber þó að geta að aðeins félagskonur hafa atkvæðisrétt á fundinum um þau málefni sem kosið verður um.
Eins, ef þið hafið einhverjar tillögur sem þið teljið að þarfnist umfjöllun aðalfundar, þá er um að gera að senda þær til stjórnar sem allra fyrst svo hægt sé að undirbúa þær fyrir fundinn.
Aðalfundur er uppskeruhátíð liðins starfsárs en einnig vettvangur þar sem teknar eru ákvarðanir sem hafa með starfsemi og skipulag félagsins að gera næsta starfsárið.
Hlökkum mikið til að sjá ykkur og eiga með ykkur góða stund!
Stjórnin



Comments