top of page
Search

Félagsstarfið rúllar af stað eftir sumarhlé

  • Stjórnin
  • Sep 8, 2024
  • 2 min read

Septemberfundur Félags austfirskra kvenna í Reykjavík fór fram í Grensáskirkju mánudaginn 2. september síðastliðinn.

Á fundinum var félagsstarfinu formlega rúllað af stað aftur eftir hefðbundið sumarhlé. Góð mæting var á fundinn en um 39 konur voru þangað mættar og var mikið spjallað á milli dagskrárliða um ævintýri sumarsins.


Oddný Vala, formaður félagsins, fór yfir dagsetningar félagsfunda fram að áramótum og kynnti þá dagskrárliði sem þegar liggja fyrir.


Fundurinn samþykkti að öll innkoma fundarins renni til söfnunar til stuðnings Jónínu Njálsdóttur og fjölskyldu í Neskaupstað en fjölskyldan hefur orðið fyrir miklum áföllum síðustu mánuði. Fjölskyldan á rætur og tengsl í nokkur þorp á Austfjörðum og hafa áföllin snert marga Austfirðinga um allt land.

Alls söfnuðust á fundinum 122.500 krónur sem lagðar hafa verið inn á söfnunarreikning fjölskyldunnar. Stjórn félagsins þakkar fundarkonum innilega fyrir framlögin en margar þeirra lögðu hærri upphæð til fundarins en aðgangseyrir hljóðaði upp á, til stuðnings málefninu.


Frá síðasta fundi félagsins hafa tvær félagskonur átt merkisafmæli, þær Gréta Jónsdóttir og Herdís Pétursdóttir, sem báðar urðu sextugar. Gréta komst ekki til fundar en Herdís tók við örlitlum glaðningi frá félaginu, rós, hekluðum englavæng og hlýjum kveðjum frá félaginu. Myndin hér að ofan er af Herdísi og Oddnýju Völu, formanni félagsins. Stjórnin kemur glaðningi til Grétu við fyrsta tækifæri.


Sívinsælu brandaraspilin voru dregin fram til að koma fundargestum í gírinn en stjórnin lumaði að þessu sinni á glóðvolgum nýjum stokki og voru ferskir brandarar dregnir út af fundargestum og lesnir upp öllum til skemmtunar.


Halla, ritari stjórnar, flutti erindi tengt Ólympíuleikum, bæði þeim sem nýafstaðnir eru og eldri leikum. Halla hefur verið í fararstjórateymi ÍSÍ á fernum Ólympíuleikum; í Peking 2008, London 2012, Ríó 2016 og leikunum í París í sumar en hún hefur unnið við undirbúning fjölmargra Ólympíuleika, bæði vetrarleika og sumarleika, í starfi sínu hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í gegnum árin. Einnig hefur hún verið í fararstjórn í öðrum ólympískum verkefnum, svo sem Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og Smáþjóðaleikum.

Undirbúningur fyrir Ólympíuleika er langur og oft flókinn en undirbúningur fyrir næstu leika hefst strax að loknum leikum. Hver gestgjafaborg og gestagjafaþjóð setur mark sitt á leikana og eru leikarnir því alltaf sérstakir og um margt ólíkir öðrum sem haldnir hafa verið. Reynt er að setja sig aðeins inn í menningu gestgjafalandsins hverju sinni og t.d. fengu Ólympíufarar og fararstjórn 10 tíma kínverskukennslu í aðdraganda leikanna í Peking 2008. Það kætti fundarkonur að fá að heyra nokkur dæmi hjá Höllu um það sem enn situr eftir af kínverskum frösum og eins um það hvernig gekk að beita fyrir sig kínverskunni þegar á reyndi úti í Kína. Það fór ekki alltaf jafnvel og vonast var til ;-).


Jóna Hallgrímsdóttir greip harmonikkuna með sér á fundinn og spilaði nokkur lög og salurinn tók vel undir. Það fer alltaf vel á því að syngja saman íslensk dægurlög og einhverjar nýttu tækifærið og fengu sér stuttan snúning í salnum.


Að venju var kaffihlaðborðið vel útilátið en stjórnarkonur önnuðust veitingarnar á þessum fyrsta fundi haustsins með aðstoð Elísabetar Magnúsdóttur sem útbjó tvær frábærar brauðtertur sem féllu heldur betur vel í kramið.


Næsti fundur verður haldinn mánudaginn 7. október nk. kl. 20:00.




 
 
 

Comments


Austfirskar

  • Facebook

©2023 by Austfirskar. Proudly created with Wix.com

bottom of page