Fjölmennt á aprílfundi
- Stjórnin
- Apr 13, 2025
- 1 min read

Yfir 50 austfirskar konur mættu á aprílfund félagsins 3. apríl sl. Það var því kátt á hjalla og mikið skrafað enda vor í lofti.
Á fundinn kom Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri Bergsins Headspace til að veita viðtöku styrk til starfseminnar að upphæð kr. 250.000,-, samkvæmt ákvörðun aðalfundar Félags austfirskra kvenna í mars síðastliðnum. Sigurþóra skýrði frá starfsemi samtakanna og því mikilvæga starfi sem þar er unnið í þágu barna og ungmenna. Vonandi á styrkurinn eftir að koma sér vel fyrir Bergið Headspace. Við erum stoltar af því að okkar skemmtilega félagsstarf leiði af sér fjárstuðning til góðra málefna.
Styrkur að upphæð kr. 250.000,- sem félagið samþykkti einnig á aðalfundi félagsins, til nýrrar starfsstöðvar Píeta samtakanna, á Reyðarfirði verður afhentur við fyrsta tækifæri og verður frá því sagt á miðlum félagsins þegar þar að kemur.
Tvær afmæliskonur fengu glaðning frá félaginu. Helga Ósk Friðriksdóttir og Berglind Þorbergsdóttir. Berglind komst því miður ekki til fundar og fékk heimsendingu á afmælisglaðningnum en Helga Ósk var á staðnum og veitti sínum viðtöku frá formanni félagsins.
Boðið var upp á spilabingó og var fjöldi vinninga af ýmsu tagi. Kaffihlaðborðið var ekkert minna en stórkostlegt og veitingarnar runnu ljúflega niður enda kaffinefnd þessa fundar bæði fjölmenn og góðmenn.
Rætt var um dagsferð félagsins sem áætlað er að verði farin laugardaginn 13. september nk. Vinnuheiti ferðarinnar ber yfirskriftina SKVÍSUFERÐ Á SKAGANN enda áætlað að fara upp á Akranes og kanna ýmis vel geymd leyndarmál þar í menningu, skemmtun og mat. Takið daginn endilega strax frá!
Nú er komið fundarhlé og er næsti fundur áætlaður mánudaginn 1. september kl. 20:00 í Grensáskirkju.
Takk fyrir skemmtilegan vetur í félagsstarfinu og frábæra fundarsókn!
Stjórnin









Comments