Minningarkort félagsins
- Stjórnin
- Oct 9, 2023
- 1 min read

Við viljum góðfúslega minna á minningarkort Félags austfirskra kvenna í Reykjavík, sem eru til sölu hjá félaginu.
Minningarkort eru tilvalin leið til að minnastlátinna ástvina og styrkja um leið gott málefni. Allur ágóði af sölu minningarkorta fer í minningarsjóð félagsins, sem veitir reglubundið styrki til ýmissa góðra mála og málefna.
Félagið hefur í gegnum tíðina styrkt góðgerðasamtök, félagasamtök, fjölskyldur eða safnanir á tækjabúnaði í heilbrigðisgeiranum, ekki síst á Austurlandi, svo einhver dæmi séu tekin,
Umsjónaraðili sölu minningakorta er Sigurbjörg Bjarnadóttir, fyrrum formaður félagsins. Hægt er að hafa samband við Sigurbjörgu beint í síma 894 2205 varðandi kortin.



Comments