top of page
Search

Það stefnir í fjölmennan aðalfund!

  • Stjórnin
  • Feb 27, 2025
  • 1 min read

Updated: Feb 28, 2025

Það stefnir í fjölmennan aðalfund mánudaginn 3. mars nk. í safnaðarsal Grensáskirkju. Virkilega gaman að sjá hversu margir hafa áhuga á starfi félagsins.

Athugið að fundurinn hefst kl. 19:00 en ekki 20:00, svo við höfum góðan tíma til að njóta veitinganna.


Við minnum á að skráning er skilyrði á fundinn, vegna matarpöntunar. Enginn vill missa af góðgætinu sem Grillvagninn mun bjóða upp á.

Þeir sem hafa skráð sig á fundinn þurfa að tilkynna forföll við allra fyrsta tækifæri, svo ekki hljótist kostnaður af vegna matarpöntunar. Litla félagið okkar má ekki við því að standa straum af slíkum kostnaði.


Aðgangseyrir er kr. 6.500 og er greiddur við innganginn með peningum. Boðið verður upp á grillhlaðborð að hætti Grillvagnsins, líkt og í fyrra. Tvær tegundir af kjöti, meðlæti, gos og svo kaffi og sætt á eftir.


Til upplýsingar fyrir fundinn er hér að finna ársskýrslu og ársreikning félagsins:

Ársreikningurinn, sem er skoðaður af skoðunarmönnum(konum :-)) sem kjörnir voru á síðasta aðalfundi félagsins, verður tekinn til afgreiðslu á fundinum sem og tillögur um styrkveitingar sem birtar voru í fyrri pósti hér á síðunni. Þar er einnig að finna upplýsingar um dagskrá fundarins.


Við viljum minna á hattaþema fundarins. Þær sem eru til í það, mæta með hatt en aðrar þurfa bara ekkert að hugsa um það og mæta bara eins og þær vilja :-).


Við hlökkum mikið til að sjá ykkur allar á mánudag!

Eins og unga fólkið segir stundum: Þetta verður litla veislan!

 
 
 

Comments


Austfirskar

  • Facebook

©2023 by Austfirskar. Proudly created with Wix.com

bottom of page